Setja þarf skýrari reglur um slægingu strandveiðiafla
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnti í dag skýrslu Matís um gæði strandveiðiafla 2011. Niðurstöður skýrslunnar sýna framför í meðferð og kælingu afla strandveiðibáta og skýrsluhöfundar telja að strandveiðiflotinn standist í þeim efnum samanburð við hina hefðbundnu dagróðrabáta. Jónas R. Viðarsson fagstjóri hjá Matís fylgdi skýrslunni úr hlaði.
Blóðgun strandveiðiafla er talin fullnægjandi að mati kaupenda enda talið að þegar aflinn er með góðu lífsmarki þegar hann kemur um borð stuðli að því að fiskurinn blóðtæmi sig vel.
Aftur á móti er stærðarflokkun strandveiðiaflans ófullnægjandi, talsvert er um hringorm og þaraþyrskling í afla sem dreginn er svo nærri landi og bæta má verulega úr röðun og frágangi í ker hjá strandveiðibátum og sama gildir um aðra dagróðrabáta.
Skýrsluhöfundar benda á að setja þarf skýrari reglur um slægingu strandveiðiafla og leggja áherslu á bætta meðferð með aukinni fræðslu, að bannað verði að fara íslaus á sjó og að áfram verði lögð áhersla á mælingar og eftirlit.
Auk Matís komu að gerð skýrslunnar Fiskistofa, Matvælastofnun og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti.