Settu umferðaslys á svið

Í mars sl. voru tvær ungar konur sakfelldar fyrir tilraun til fársvika og að hafa gabbað lögreglu og annað neyðarlið með því að hafa í félagi, þann 4. júní 2011, sett á svið umferðarslys við rétt norðan við brúna yfir Miklagil á Holtavörðuheiði, í því skyni að svíkja út vátryggingabætur.

Málið var tekið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur 2. mars. Í dómnum segir að þær hafi vísvitandi ekið bifreiðinni utan vegar, „gabbað lögreglu og annað neyðarlið er ein ákærða hringdi í Neyðarlínuna 112 og óskaði eftir sjúkrabíl þar sem þörf væri á skjótri neyðaraðstoð vegna alvarlegs bílslyss en hún gerði viðmælanda sínum sérstaklega kunnugt um að ákærða væri barnshafandi og gat þess m.a. að það væri farið „að blæða út um allt“. Á meðan á símtalinu stóð létu báðar ákærðu sem þær væru í mikilli geðshræringu af völdum slyssins.“

Lögreglu- og sjúkrabifreiðar frá Hvammstanga, Blönduósi og Búðardal voru sendar á staðinn. Þar sem önnur konan var barnshafandi ákvað læknir á vettvangi að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flýta fyrir flutningi á slysadeild.

„Komist að þeirri niðurstöðu að ákærðu hefðu sviðsett umferðarslysið og meðal annars vitnað í læknisvottorð. Í þeim vottorðum kemur fram að ákærðu höfðu ekki slasast og eini áverkinn sem þær báru var skurður á enni hvorrar þeirra. Skurðirnir líktust ekki skurðum er menn fá í slysum heldur var eins og þeir hefðu verið skornir með hníf eða einhverjum öðrum egghvössum hlut,“ segir í dómnum.

Ákærðu voru hvor um sig dæmdar til að sæta 6 mánaða fangelsi bundið skilorði, eins og í dómsorði segir. Auk þess voru þær dæmdar til að greiða óskipt sakarkostnað og málsvarnarlaun verjenda sinna.

Heimild: Domstolar.is

Fleiri fréttir