Sex laxar á laugardagseftirmiðdegi
Á veiðvefnum Lax-á.is er greint frá því að veiðimaður einn sem tók stutta vakt í Svartá í Austur-Húnavatnssýslu hafi krækt í sex laxa, án þess þó að fullnýta vaktina, en hann mun hafa byrjað að veiða kl 17:00 á laugardegi um síðast liðna helgi.
Af löxuxunum sex veiddust fjórir í Torfustaðakvörn en hinir tveir fyrir ofan Húnaver, á veiðistað sem nefnist Botnstaðahylur. Veiðiveður mun hafa verið eins og best verður á kosið og leit Svartá vel út þrátt fyrir að vera nokkuð vatnsmikil