Síðasti séns að vinna ferð til Prag!

Nú er fer að vera síðasti séns að vera með í lukkupottinum og vinna ferð til Prag í haust en eftir kl. 12 á sunnudaginn, mæðradag, verður heppinn áskrifandi Feykis dreginn úr pottinum og mun hann vinna ferð fyrir tvo til einnar fallegustu borgar Evrópu, ásamt hótelgistingu á ✰✰✰✰ hóteli, í boði Heimsferða.

Á mæðradaginn, 13. maí, getur sá heppni, eða sú heppna, sem hreppir aðalvinninginn gefið mömmu sinni bestu mæðragjöfina sem hægt er að hugsa sér og boðið henni með sér til Prag. Eða farið í rómantíska ferð með elskunni sinni, eftir því hvað hver vill.

Þeir sem verða svo lukkulegir að hreppa annan og þriðja vinninginn fá strigaprentun frá Nýprent.

Ef þú ert áskrifandi nú þegar þá ertu kominn í pottinn - en ef ekki þá er það eina sem þú þarft að gera er að fá þér áskrift af Feyki, og um leið færðu fréttir og fróðleik úr þinni heimabyggð inn um bréfalúguna.

Feykir kemur út á fimmtudögum og er áskriftin einungis á 1400 kr. á mánuði. Hringdu núna í síma 455 7172 eða sendu póst á feykir@feykir.is.

 

Fleiri fréttir