Síðustu forvöð að ná sér í jólatré

Nú eru síðustu forvöð að næla sér í lifandi jólatré frá Skógræktarfélagi Austur-Húnvetninga sem verður með jólatrjáasölu á Gunnfríðarstöðum laugardaginn 22. desember kl. 11-15. Einnig er félagið með sölu á jólatrjám á Fjósum í Svartárdal á sama tíma.

Í fréttatilkynningu frá Skógræktarfélagi Íslands segir að það sé öllum í hag að kaupa ferskt íslenskt jólatré af skógræktarfélögunum og styrkja jafnframt skógræktarstarfið í landinu.

 

Fleiri fréttir