S.Í.F. fordæma aðgerðir LÍÚ

Samtök íslenskra fiskimanna fordæma harkalega aðgerðir LÍÚ í dag og í liðinni viku. Aldrei áður hefur eins svívirðilegum brögðum verið beitt í hagsmuna- eða foraréttindabaráttu á Íslandi, segir í tilkynningu frá þeim.

Samtök íslenskra fiskimanna beina því til Alþingis;

1.         Að verða við ósk LÍÚ um að afturkalla frumvarp til laga um stjórn fiskveiða.
2.         Að koma fram með nýtt frumvarp þar sem fullt jafnræði og mannréttindi ríkja um úthlutun veiðiheimilda.

„LÍÚ og þeir útvegsmenn sem taka þátt í að láta sjómenn sína sigla tímunum saman til Reykjavíkur og fá þá svo til að þramma inn á Austurvöll til að berjast fyrir áframhaldandi forréttindum sínum, ættu með þessu athæfi að hafa dæmt sig frá allri frekari umræðu um fiskveiðistjórnun á Íslandi: Þeir eru ekki marktækir lengur.

Sú svívirðilega framkoma sem LÍÚ sýnir starfsfólki sínu, íslensku þjóðinni, Alþingi og ríkisstjórn kallar á að forréttindi þeirra verði afnumin án tafar.
Þeir misfara með þau forréttindi og þann auð, sem þeim hefur áskotnast í formi húsbóndavalds yfir nær öllum veiðiheimildum, okkar dýrmætustu auðlind og lífsbrauði, sem þeim hefur verið veittur einkaréttur á í skjóli Alþingis

Samtök íslenskra fiskimanna vekja athygli á því að í umsögn okkar til Alþingis um veiðigjaldafrumvarpið kemur fram að við teljum veiðigjaldið mjög hóflegt og að enginn þokkalega vel rekinn útgerð ætti að sligast undan því. Síðan þá hefur það verið lækkað um helming í meðförum Alþingis.

Einnig vekjum við athygli á því að SÍF hefur óskað eftir og gert skriflegt tilboð í 10.000 tonn af þorskveiðiheimildum frá vörsluaðila þjóðarinnar ríkinu, fyrir félagsmenn sína og boðið 100 kr. fyrir pr. kg.

Tilboðinu var hafnað og núverandi forréttindastétt fiskveiðiheimildanna afhent þetta sama magn fyrir  8 kr. pr. kg. Félagsmönnum SÍF var síðan vísað á að leigja sér veiðiheimildir á 320 kr. pr. kg frá þessari sömu forréttindastétt.

Er ekki  tímabært að hleypa nýjum mönnum að í íslenskum sjávarútveg.“

Fleiri fréttir