Sigló hótel lánar Grunnskólanum húsnæði fyrir kennslu

Mynd: Trölli.is
Mynd: Trölli.is

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða sem tók gildi þann 3. nóvember kemur misjafnlega niður á skólastarfi. Samkvæmt henni mega grunnskólanemendur í 1. til 4. bekk mest vera 50 í rými en í 5.–10. bekk að hámarki 25 í hverju. Um þá gilda einnig tveggja metra nálægðartakmörk og ef ekki er hægt að uppfylla þau skulu nemendurnir nota grímu. Á Siglufirði var vandinn leystur á Hótel Sigló.

Á Trölla.is er greint frá því að síðastliðið vor hafi unglingarnir nánast alveg verið í fjarnámi, og leit út fyrir að svo yrði einnig nú. Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, sá að hann gæti veitt aðstoð og sendi Erlu Gunnlaugsdóttur, skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar bréf þar sem hann bauð skólanum afnot af húsum Sigló hótels, sem jafnan eru kölluð „Rauða og Bláa húsið“ og hafa verið einskonar tákn Siglufjarðar undanfarin ár.

„Þá fórum við að hugsa út fyrir boxið,“ segir Erla í samtali við Trölla.is, „og niðurstaðan er sú að unglingastigið þarf ekki að vera í fjarnámi núna, heldur er 10. bekkur á efri hæð Rauða hússins, í leðursófum við arineld, 9. bekkur er á neðri hæðinni þar sem fer vel um þau og 8. bekkur hefur góða aðstöðu í Bláa húsinu. Það besta er að nú þurfum við ekki að skipta árgöngunum,“ segir Erla.

Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, hótelstjóri Sigló hótels sagði í samtali við Trölla í morgun að það væri ánægjulegt að geta hjálpað og þetta væri þeirra framlag til samfélagsins á þessum erfiðu tímum þar sem allir þurfa að hjálpast að. „Gott að geta nýtt sali hótelsins á þennan hátt,“ segir Kristbjörg, sem lánar skólanum húsnæðið endurgjaldslaust.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir