Siglt frá Vestfjörðum og Norðurlandi beint til Bretlands og meginlandsins
Samskip boða þáttaskil í sjóflutningum til og frá Íslandi með nýrri siglingarleið sem er á dagskrá frá og með 18. mars næstkomandi. Flutningaskip á vegum félagsins fer þá frá Reykjavík til Ísafjarðar, Akureyrar og Reyðarfjarðar og þaðan til Immingham í Bretlandi og Rotterdam í Hollandi með viðkomu í Kollafirði í Færeyjum. Frá Rotterdam heldur skipið heim á leið, kemur til Reykjavíkur sunnudaginn 31. mars og leggur af stað í nýja hringferð daginn eftir, 1. apríl. Viðkomustöðum verður hugsanlega fjölgað í framtíðinni.
„Við höfum fundið fyrir mikilli þörf á beinum siglingum frá Vestfjörðum og Norðurlandi, m.a. á sjávarafurðum inn á helstu markaði í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Við grípum nú tækifærið og endurskipuleggjum leiðakerfi okkar. Með þessum breytingum komum við til móts við óskir og þarfir viðskiptavina félagsins,“ segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.