Siglufjarðarvegur er þungfær utan Fljóta

Vegir á Norðurlandi vestra eru að mestu auðir en þó er hálka og snjóþekja á Vatnsskarði og Þverárfjalli. Siglufjarðarvegur er þungfær utan Fljóta. Á Þverárfjalli er enn varað við mjög ósléttum vegi og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn. 

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðan 3-8 og dálítil él. Frost 0 til 6 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:
Hæg norðlæg átt og bjart veður, en dálítil él við N-ströndina og einnig syðst á landinu. Frost 0 til 8 stig, en hiti 0 til 5 stig að deginum S-lands.

Á miðvikudag:
Norðan 5-10 og léttskýjað S- og V-lands, en dálítil él NA-til. Áfram kalt í veðri.

Á fimmtudag:
Suðvestanátt og dálítil él V-lands, en bjartviðri á A-verðu landinu. Hiti 1 til 6 stig, en frost 0 til 5 stig á NA- og A-landi.

Á föstudag og laugardag:
Suðvestanátt, lítilsháttar úrkoma S- og V-lands og milt veður.

Á sunnudag:
Snýst líklega í norðanátt með kólnandi veðri.

Fleiri fréttir