Sigmundur þreifar fyrir sér

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins hefur síðustu daga átt óformlegar viðræður við fulltrúa allra stjórnmálaflokka á þingi. Viðræðurnar hafa fyrst og fremst snúist um að fá fram sýn flokkanna á stöðuna eftir alþingiskosningarnar og hver helstu áherslumálefni þeirra eru við upphaf kjörtímabilsins.

Sigmundur Davíð átti í gær framhaldsfund með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins til að fara nánar yfir tillögur Framsóknarmanna varðandi skuldamál heimilanna.

Fleiri fréttir