Sigríður Hrund lagði land undir fót

Sigríður Hrund heimsótti meðal annars starfsmenn Tengils á Sauðárkróki á ferð sinni um landið. AÐSEND MYND
Sigríður Hrund heimsótti meðal annars starfsmenn Tengils á Sauðárkróki á ferð sinni um landið. AÐSEND MYND

Fyrsta legg hringferðar Sigríðar Hrundar um landsbyggðina er nú lokið. Sigríður Hrund lagði land undir fót og heimsótti fjóra staði á Norðurlandi; Sauðárkrók, Siglufjörð, Dalvík og Akureyri og voru viðtökur góðar. Markmiðið var að eiga beint og milliliðalaust spjall við þjóðina á heimavelli og heppnaðist það vel. Mæting var góð og sköpuðust innihaldsríkar umræður. Sigríður kom líka í hádegisspjall á Hvammstanga og heimsótti Dalamenn.

Boðað var til opinna funda á sex stöðum víðsvegar um Norðurlandið, en auk þess sem Sigríður Hrund heimsótti vinnustaði og var að auki ítrekað boðið óvænt til kaffispjalls á heimilum fólks. Gæddu fundargestir sér á kaffi og með því að hætti heimamanna og tóku spjall um það sem skipti máli fyrir svæðið hverju sinni. Umræðurnar voru fróðlegar og einstaklega gagnlegar í farteskið fyrir komandi tíma.

„Ég var svo lánsöm að fá að hitta fólkið á landsbyggðinni á þeirra heimavelli. Sama hvar okkur bar niður virtist samhljómur í hugum fólks varðandi forsetaembættið. Það má segja að leiðarstefið í gegnum flesta fundina hafi verið mikilvægi þess að forseti hlusti vel á þjóðina, standi með þjóðinni og sé óháð í sinni afstöðu. Ég er afar þakklát fyrir móttökurnar og auðmjúk í hjarta. Það var dýrmætt að setjast niður persónulega með fólkinu og eiga þessi innihaldsríku samtöl um líf þeirra og framtíð, en ég er mætt til að þjóna í okkar þágu,“ segir Sigríður Hrund.

Hér meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá ferðalaginu og þessum dýrmætu stundum með fólkinu sem Sigríður Hrund kynntist á ferð sinni um Norðurland.

Næsta fundaröð Sigríðar Hrundar þar sem hún spjallar við þjóðina, verður á Austurlandi og hefst í vikunni eftir Páska.

/fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir