Sigur fyrir sögubækurnar

Lið Kormáks/Hvatar er komið í úrslitakeppni 4. deildar. MYND AF FB-SÍÐU LIÐSINS
Lið Kormáks/Hvatar er komið í úrslitakeppni 4. deildar. MYND AF FB-SÍÐU LIÐSINS

Það var allt undir hjá Húnvetningum í dag þegar Kormákur/Hvöt heimsótti lið Úlfanna á Framvöllinn í Reykjavík í lokaumferð 4. deildar.. Eftir sigur Hvítu riddaranna á liði Snæfells sl. fimmtudag var ljóst að ekkert annað en sigur dugði liði K/H í dag til að koma liðinu í úrslitakeppni um sæti í 3. deild að ári. Leikurinn í dag var hreint ótrúlegur en þegar í óefni var komið stigu leikmenn Kormáks/Hvatar upp og börðust til frábærs sigurs. Lokatölur 4-5 og sæti í úrslitakeppninni tryggt í fyrsta sinn í sögu sameinaðs liðs Húnvetninga.

Eins og frá er sagt í inngangi þá sigraði Hvíti riddarinn lið Snæfells í lokaleik liðanna í B-riðli 4. deildar og voru bæði með 34 stig. Kormákur/Hvöt var með 32 stig í þriðja sæti riðilsins þegar kom á lokaleik riðilsins og því ljóst að ekkert annað en sigur dygði til að koma Húnvetningum í úrslitakeppnina. Setja má spurningamerki við þá ákvörðun KSÍ að spila ekki alla leiki í lokaumferð riðilsins á sama tíma.

Norðanpiltar fóru vel af stað á Framvellinum og Hlynur Rafn Rafnsson kom þeim yfir á 14. mínútu með skallamarki. Mínútu síðar slapp Óskar Smári Haraldsson inn fyrir vörn Úlfanna eftir snöggtekna aukaspyrnu og staðan skyndilega 0-2 og þannig stóð í hálfleik. Í síðari hálfleik fór hins vegar allt að gerast og hjólin virtust rúlla undan vagni Húnvetninga hvert af öðru.

Fyrst minnkaði Andri Sólbergsson muninn með glæsimarki á 49. mínútu og skömmu síðar var Juan Dominguez sendur í bað eftir að hafa sparkað í liggjandi Úlf. Heimamenn jöfnuðu metin á 55. mínútu og Andri Þór bætti öðru marki við úr víti á 61. mínútu eftir að Miguel Martinez, markvörður Kormáks/Hvatar, var talinn brotlegur í teignum og missti sig í kjölfarið. Honum var vikið af velli og Húnvetningar nú tveimur færri og lentir undir í leik sem ekki mátti tapast. Fimm mínútum síðar virtist leikurinn vera að breytast í martröð fyrir gestina þegar Úlfarnir bættu við fjórða marki sínu. Staðan 4-2.

En það stendur einhversstaðar skrifað að það megi aldrei gefast upp og Húnvetningar fundu hjólin og drösluðu þeim löskuðum undir vagninn á ný.  Úlfarnir héldu áfram að sækja en fengu mark í andlitið þegar Hilmar Kárason minnkaði muninn eftir skyndisókn.  Markamaskínan síunga, Bjarki Már Árnason, þjálfari gestanna og yfirvarnarjaxl, fór nú í fremstu víglínu og hann jafnaði leikinn með skallamarki eftir hornspyrnu á 88. mínútu og þremur mínútum síðar fiskaði hann vítaspyrnu. Það var Ingvi Rafn Ingarsson sem steig svellkaldur á punktinn og skoraði af öryggi og tryggði 4-5 sigur. Hreint með ólíkindum. 

Í úrslitakeppninni mætir lið Kormáks/Hvatar Hvergerðingum í Hamri í átta liða úrslitum. Fyrsti leikurinn fer fram á Grýluvelli þeirra sunnanmanna föstudaginn 30. ágúst kl. 18:00. Seinni leikur liðanna verður á Blönduósvelli 3. september kl. 17:15. Ljóst er að þeir Juan og Miguel verða í banni en hver ætlar að veðja gegn Kormáki/Hvöt eftir svona karaktersigur og níu sigurleiki í röð?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir