„Sigur í okkar skóla“
Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga tók upp nýja leikskólastefnu haustið 2010, svokallað Flæði og fékk veglegan styrk frá Sprotasjóði til að þróa stefnuna áfram. Guðrún Lára Magnúsdóttir er leikskólastjóri í Ásgarði og vinnur ötullega að því að útfæra stefnuna innan veggja leikskólans, ásamt samstarfsfólki sínu.
Þegar Guðrún Lára gerðist leikskólastjóri árið 2006 langaði hana til að skólinn myndi finna sjálfstæða stefnu. „Ég var ekki alveg sátt við skólann eins og hann var. Mér fannst við geta gert betur, þar sem einstaklingurinn fengi betur notið sín,“ sagði hún. Þær fóru í kynnisferðir innanlands og utan, þar til þær kynntust fyrst stefnunni Flæði, sem var á Uglukletti á Borgarnesi. Síðar heimsóttu þær Ryvang 2 í Danmörku sem starfar í sama anda.
Hugmyndafræðin Flæði er sótt í bókina „Finding Flow“ eftir Mihaly Csikszentmihalyi og hún byggir á jákvæðri sálfræði. Í bókinni er þetta orðað á þann veg: „að stundum þegar vitund okkar er full af upplifun og tilfinningar okkar, óskir og hugsanir eru samstilltar þá upplifum við svokallað flæði.“ Guðrún Lára útskýrir hugmyndafræðina nánar: „Þegar við vinnum út frá flæðishugsun byggir það á því að skapa nemandanum örvandi námsumhverfi. Hann verður svo hugfanginn af því sem hann er að gera að það fangar hug hans allan. Hrósa þarf nemandanum jafnóðum og hvetja hann áfram. Þegar hann hefur lokið leiknum, sem var valinn út frá löngun hans og áhuga, upplifar hann vellíðan sem leiðir af sér jákvæða og sterka sjálfsmynd.“
Flæði komið á í Ásgarði
Haustið 2010 var tekin sú ákvörðun að gera breytingar á skólahúsnæðinu, en umhverfið þarf að vera aðlaðandi og áhugavert fyrir barnið að sögn Guðrúnar Láru. Húsnæði leikskólans var skipt upp í átta svokallaðar flæðistöðvar; tónlistargarð, einingakubbagarð, sullgarð, ævintýragarð, útigarð, friðargarð, vísindagarð og listagarð.
„Sem betur fer erum við með einstaklega jákvæðan hóp foreldra hér í Húnaþingi vestra, sem hafa gefið okkur virkilega gott svigrúm til að framkvæma það sem okkur langaði að gera,“ segir Guðrún Lára. „Svo þegar dagurinn rann upp áttum við von á að börnin yrðu örþreytt og ómöguleg eftir allar breytingar dagsins, en... það var svo merkilegt að það var eins og allt dytti í dúnalogn hér í leikskólanum,“ útskýrði hún.
Leikur er barna yndi
Í vor auglýsti Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla eftir styrkjum, en hlutverk hans er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Guðrún Lára ákvað að prófa að sækja um styrk og fékk leikskólinn úthlutað 1,4 m.kr. úr sjóðinum fyrir þróunarverkefnið Leikur er barna yndi.
Svo má segja að fagnaðarerindið sé að breiðast út þar sem sífellt fleiri leikskólar eru að taka upp Flæði, en Leikskólarnir Barnabær á Blönduósi og Lækjarbrekka á Hólmavík eru nú að gera breytingar í sínu skólaumhverfi.
„Þessi styrkúthlutun var svo mikill sigur í okkar skóla. Leikskólar þurfa alltaf svo mikið að berjast fyrir tækifærum til að þróa sig í starfi, svo ekki sé talað um fjármagn til þess. Leikskólastarfið ætti að fá mun meiri viðurkenningu fyrir það starf sem unnið er í skólunum. Starfsfólkið þarf að koma til móts við svo marga og hugsa á svo fjölbreyttan hátt. Við þurfum að vinna með öll þessi einstöku börn sem öll hafa sínar sérstöku þarfir. Það þarf að sýna þeim athygli, dást að þeim og sýna þeim hvað þau eru dásamleg!“
Ítarlegt viðtal við Guðrúnu Láru má lesa í nýjasta tölublaði Feykis.