Símaskráin komin í dreifingu á Norðurlandi vestra
Ný símaskrá fyrir 2013/2014 kom út í gær. Íbúar á Norðvesturlandi geta nálgast nýju símaskrána í afgreiðslu Póstsins við Ártorg 6 Sauðárkróki, Lækjargötu 2 Hvammstanga, Hnjúkabyggð 32 Blönduós, og Höfða Skagaströnd. Þangað má einnig skila gömlum símaskrám til endurvinnslu.
Íslenska símaskráin hefur komið út frá árinu 1905. Símaskráin í ár er helguð sjálfboðaliðum björgunarsveita Landsbjargar. Reynslusögur og þakkir landsmanna sem notið hafa góðs af starfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar birtar í símaskránni sjálfboðaliðunum til heiðurs. Einu laun sjálfboðaliðanna eru þakklæti samfélagsins og Símaskránni er ætlað að undirstrika þann hlýhug sem landsmenn bera til björgunarsveitanna.
Símaskráin 2013 sækir innblástur í sjálfboðaliðastarf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og minnir á þau verðmæti sem íslenskt samfélag á í þeim 18.000 konum og körlum sem helga starfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar frítíma sinn og eru ávallt reiðubúin til hjálpar þegar á þarf að halda.
Á innsíðum Símaskrárinnar 2013 er síðan að finna þrjár reynslusögur, sem valdar voru af dómnefnd og þóttu lýsa mikilvægi starfs Landsbjargar. Þar segja sögumenn reynslu sína af því að þiggja aðstoð björgunarsveitanna við björgun úr háska. Höfundar reynslusagnanna hlutu peningaverðlaun sem renna óskert til björgunarsveita að þeirra eigin vali.
Nýja símaskráin telur 1.512 blaðsíður og er prentuð í hundrað þúsund eintökum.