Sindri og Ásmundur sækjast báðir eftir öðru sæti á lista framsóknar

Ásmundar Einar Daðasonar alþingismaður, sagði í viðtali í Skessuhorni á dögunum að hann hyggist gefa kost á sér í annað sæti á lista Framsóknarflokks í NV kjördæmi fyrir næstu kosningar. Kölluðu þau ummæli þegar á viðbrögð Sigurgeirs Sindra Sigurgeirssonar bónda í Bakkakoti í Borgarfirði og varaþingmanns flokksins og að sögn Skessuhorns skrifaði hann á Fésbókarsíðu sína:

„Það er ljóst að það er kominn kosningahugur í Ásmund Einar Daðason. Til fróðleiks fyrir hann og fleiri þá hyggst ég einnig gefa kost á mér í annað sætið á lista Framsóknarflokks.“

„Þess má geta að í aðdraganda alþingiskosninga 2009 fór fram prófkjör þar sem Gunnar Bragi Sveinsson úr Skagafirði varð efstur en Guðmundur Steingrímsson sigraði Sigurgeir Sindra naumlega í baráttunni um annað sætið. Síðan hefur það gerst að Guðmundur er hættur í Framsóknarflokknum og Ásmundur Einar hættur sem þingmaður VG í kjördæminu og genginn til liðs við Framsóknarflokkinn eins og áður segir. Það er því ljóst að búast má við harðri baráttu um efstu sæti listans. Þá vekur athygli að hvorki Sigurgeir Sindri né Ásmundur Einar hyggjast gera atlögu að sitjandi oddvita listans og formanni þingflokks Framsóknarmanna, Gunnari Braga Sveinssyni“, segir í Skessuhorni.

Fleiri fréttir