Sjálfboðaliðastarf hjá Rauða krossinum
Vetrarstarf Austur-Húnavatnsdeildar Rauða krossins er að hefjast og er leitað eftir áhugasömum sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á því að starfa við fjölbreytt og skemmtileg verkefni m.a. við fatasöfnun, fatamarkað, heimsóknarvini, skyndihjálp og neyðarvarnaráætlun svæðisins.
Frá 5.- 6. október næstkomandi er landsöfnun RKÍ „Göngum til góðs“ þar sem öll framlög verða nýtt til að hjálpa börnum í neyð. Þeir sem hafa áhuga á að leggja góðu málefni lið og vilja taka hressandi göngutúr á föstudag eða laugardag geta skráð sig á heimasíðu RKÍ: http://www.raudikrossinn.is/flex/gtg/. Einnig er hægt að hafa samband við sjálfboðaliða og fá aðstoð við að skráninguna.
„Undanfarin ár höfum við verið með fatasöfnunargáma þar sem íbúar Austur-Húnavatnssýslu hafa verið ótrúlega öflugir við að styrkja starf RKÍ með framlögum og kunnum við ykkur bestu þakkir fyrir, ykkar framlag er ómetanlegt. Til að tryggja að fatnaðurinn nýtist sem best biðjum við ykkur um að ganga frá fatnaði í poka og loka þeim vel. Þeir sem vilja gefa fatnað eða aðra nytjavöru beint til deildarinnar er bent á að hafa samband við okkur,“ segir í tilkynningu frá deildinni.