Sjávarútvegsfyrirtæki áberandi meðal þeirra sem skara framúr

Samherji er efstur á lista þeirra tíu fyrirtækja sem Creditinfo valdi framúrskarandi fyrirtæki ársins 2013. Í öðru sæti er Síldarvinnslan en fyrirtækin voru valin úr hópi 462 fyrirtækja á Íslandi. Af þessum tíu framúrskarandi fyrirtækjum koma fjögur úr ranni sjávarútvegarins þar sem alþjóðlega tæknifyrirtækið Marel er í fjórða sæti listans og Ísfélag Vestmannaeyja í því tíunda.

Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir þetta skýrt dæmi um það hve framúrskarandi íslenskur sjávarútvegur er. Samherji er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki en meirihluti umsvifa og starfsemi fyrirtækisins er á erlendri grund.

"Fyrirtækin, og þá sérstaklega Samherji, hafa náð frábærum árangri með öflugu markaðsstarfi og framsækni sem ætti að vera öllum útflutningsfyrirtækjum fyrirmynd. Þessi dæmi sýna hve mikinn arð er hægt að skapa með ábyrgri nýtingu og sjálfbærni að leiðarljósi," segir Kolbeinn. Fyrirtæki sem þessi skili miklum arði og þekkingu sem nýtist samfélaginu öllu og skapi enn frekari tækifæri.

Creditinfo byggir mat sitt á ítarlegri greiningu. Af rúmlega 33.000 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá taldi Creditinfo 462 verðskulda nafnbótina „Framúrskarandi fyrirtæki 2013". Verðlaunin afhenti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á Hótel Nordica í dag.

10 efstu fyrirtækin á lista yfir stór framúrskarandi fyrirtæki ársins:

Samherji hf.

Síldarvinnslan hf.

Medis ehf.

Marel hf.

Norðurál Grundartangi ehf.

Icelandair Group hf.

Össur hf.

Icelandair ehf.

Horn Fjárfestingarfélag hf.

Ísfélag Vestmannaeyja hf.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir