Sjö milljónir til Unglingalandsmóts

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur úthlutað styrkjum til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði menningarmála. Unglingalandsmót UMFÍ, sem haldið verður á Sauðarkróki í sumar, er meðal þeirra og hlýtur sjö milljónir í styrk.

Úthlutunin er í samræmi við breytt fyrirkomulag úthlutunar styrkja til félaga, samtaka og lögaðila en Alþingi hefur hætt úthlutun á styrkjum til ýmissa verkefna eins og verið hefur. Alþingi ákvarðar áfram umfang fjárframlaga en úthlutun er í höndum mismunandi ráðuneyta eftir málefnasviðum þeirra.

Í úthlutun ráðuneytisins var áhersla lögð á verkefni á sviði listgreina, menningararfs og uppbyggingar landsmótsstaða. Mennta- og menningarmálaráðuneyti tók til meðferðar 103 umsóknir þar sem sótt var um styrki alls að fjárhæð 351.789.650 kr.  Alls eru veittir 20 styrkir að þessu sinni.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir