Sjö vilja stöðu skólameistara

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra rann út mánudaginn 30. maí sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, þrjár frá konum og fjórar frá körlum.

Umsækjendur eru:

• Aðalheiður Dröfn Eggertsdóttir, deildarstjóri,

• Geir Hólmarsson, meistaranemi,

• Helgi Einar Baldursson, framhaldsskólakennari,

• Ingileif Oddsdóttir, náms- og starfsráðgjafi,

• Jóhannes Ágústsson, fyrrverandi skólastjóri,

• Nína Þóra Rafnsdóttir, framhaldsskólakennari og

• Þorkell Vilhelm Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar.,

Fleiri fréttir