Sjónhorn og Feykir koma út í dag

Feykir og Sjónhorn fara í dreifingu í dag, fimmtudaginn 19. júní, en þjóðhátíðardagurinn setti strik í reikninginn varðandi prentun og dreifingu og blöðin því að berast í hús degi síðar en vanalega. Sjónhornið var reyndar komið á netið í gær en rafræn útgáfa Feykis varð aðgengileg nú í morgun.

Blað vikunnar er að venju barmafullt af efni og er aðalefni 23.. tölublaðs Feykis þetta árið frásögn af ferð Karlakórsins Heimis til Brighton. spjallað er við tvær dömur sem mættu til leiks í Prjónagleðin á Blönduósi, Fanney Birta kynnir Hofsós heim og Skagstrendingurinn Rúnar Kristjánsson skilaði inn einni Bragartólfu.

Þá er gleðilegt að nýr þáttur hefur göngu sína en Eyþór Árnason skáld verður með einn renning á baki Feykis kannski hálfsmánaðarlega; upprifjanir og hugrenningar úr strætóferðum milli Skagafjarðar og höfuðborgarinnar.

Fleiri fréttir