Sjónhorninu seinkar

Af óviðráðanlegum ástæðum þá seinkar útgáfu Sjónhornsins í dag og er beðist velvirðingar á því. Sjónhorninu verður þó dreift á Sauðárkróki í dag þó það geti verið seinna á ferðinni en lesendur eiga að venjast. Hætt er við að sólarhringstöf geti orðið á dreifingu utan Sauðárkróks.

Þeim sem ekki geta beðið er bent á að Sjónhornið er komið á netið og hægt að fletta því þar –til dæmis með því að smella hér!

Ef allt gengur upp þá mun útgáfa Feykis ekki truflast og áskrifendur ættu að fá Feykirinn í sínar hendur á svipuðum tíma og venjulega. Við ítrekum að beðist er velvirðingar á biðinni eftir Sjónhorninu.

Fleiri fréttir