Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á Blönduósi
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið víðs vegar um landið á laugardaginn.
Á Blönduósi verður hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni kl. 11 á laugardagsmorgun eftir góða upphitun. Hægt verður að kaupa boli frá kl. 10:30 á hlaupadaginn og líka í dag, þriðjudag kl. 17 – 19 í Íþróttamiðstöðinni. Þær sem sjá sér ekki fært um að mæta á þessum tíma í dag geta haft samband við Berglindi í síma 863 – 6037. Húni.is segir frá þessu.
Alls kyns fróðleik um Kvennahlaupið er að finna á heimsíðu Sjóvá.