Skagaströnd kaupir hús listamiðstöðvarinnar Ness

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Skagastrandar lá fyrir kaupsamningur milli sveitarfélagsins og Nes listamiðstöðvar þar sem sveitarfélagið kaupir eignina Fjörubraut 8 þar sem listamiðstöðin er til húsa á 10 milljónir króna. Hluti andvirðisins mun ganga upp í viðskiptaskuld við sveitarfélagið.

 

Meðfylgjandi kaupsamningnum var samantekt um viðskiptastöðu félagsins og áætlun um greiðsluflæði listamiðstöðvarinnar fyrir árið 2012 að gefnum ákveðnum forsendum í aðsókn og útlögðum kostnaði. Sveitarstjórn ræddi fyrirliggjandi gögn en samþykkti síðan kaupsamninginn fyrir sitt leyti og jafnframt að gerður yrði leigusamningu milli aðila um eignina.

Fleiri fréttir