Skagstrendingar áminntir um reglur vegna hundahalds

Á vef Skagastrandar kemur fram að undan farið hafi í vaxandi mæli borið á því að fólk láti hunda sína ganga lausa þvert á mjög skýra reglu í samþykkt um hundahald í bænum þar sem segir að hundurinn skuli aldrei ganga laus á almannafæri heldur vera í taumi í fylgd með aðila sem hefur fullt vald yfir honum.

Jafnframt segir að á almannafæri sé hundaeiganda skylt að fjarlægja saur eftir hund/hunda sína á tryggilegan hátt.“

Á heimasíðunni segir að margir hundaeigendur fái því miður einnig falleinkunn fyrir síðari hluta greinarinnar því víða í bænum megi sjá hundaskít.

Á heimasíðunni segir; „Er hér með skorað á hundaeigendur að bæta ráð sitt bæði hvað varðar lausagöngu hundanna og óþrif eftir þá. Sérstaklega verður að gera kröfu til að borin sé virðing fyrir leiksvæðum barna í þessum efnum. Eins og oft gerist geta fáir komið óorði á marga með slæmu framferði.

Nokkur brögð eru einnig að því að hundar séu óskráðir og er hér með skorað á þá sem það á við að bæta úr og ganga frá skráningu hunda sinna á skrifstofu sveitarfélagsins.

Ástæða er til að benda á að allir hundar sem eru handsamaðir skulu leystir út með greiðslu samkvæmt gjaldskrá. Í samþykktum um hundahald segir m.a.:

„Hunda sem ganga lausir utanhúss skal handsama og færa til geymslu. Sama gildir um hættulega hunda og óleyfilega hunda.

Kostnaður við töku og geymslu hunda skal að fullu greiddur af eigendum samkvæmt gildandi gjaldskrá.“

Skrá um þá sem hafa leyfi til hundahalds kemur fram undir Stjórnsýsla - Samþykktir á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is.“

Fleiri fréttir