Skáldakvöld á Skagaströnd

Ljóðskáldin Gerður Kristný og Aðalsteinn Ásberg koma fram á skáldakvöldi á Skagaströnd nk. miðvikudagskvöld en þar ætla þau að lesa upp og segja frá verkum sínum. Skáldakvöldið verður haldið í bókasafni Rannsóknaseturs HÍ (Gamla kaupfélaginu) á Skagaströnd miðvikudaginn 23. janúar kl. 20:00.

Gerður Kristný er fædd árið 1970 og hefur gefið út um það bil 20 bækur fyrir bæði börn og fullorðna. Ljóðabókin Blóðhófnir færði henni Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2010 og í fyrra kom út eftir hana ljóðabókin Strandir. Hún hefur m.a. hlotið Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins, Ljóðstaf Jóns úr Vör og Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar og Ingibjargar Sigurðardóttur.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson er fæddur 1955 og hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, frumsaminna og þýddra, auka barnabóka og annars bókmenntaefnis. Hann er ennfremur þekktur fyrir söngljóð sín og vísnatónlist sem er að finna á fjölmörgum geisladiskum og hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Á liðnu hausti sendi hann frá sér ljóðabókina Sjálfsmyndir, en auk hennar kom frá hans hendi Hjaltlandsljóð, safn þýðinga á nútímaskáldskap frá Hjaltlandseyjum.

Skáldakvöldið er styrkt af Minningarsjóðnum um hjónin frá Garði og Vindhæli. Aðgangur er ókeypis.

Fleiri fréttir