Skalli vill tonn á móti tonni á Skagaströnd
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Skagastrandar var tekið fyrir bréf sem ritað var fyrir hönd smábátafélagsins Skalla. Þar var bent á að úthlutunarreglur byggðakvóta á Skagaströnd séu með þeim hætti að hver sem fær úthlutað einu tonni af byggðakvóta þurfi að leggja upp tvö tonn á móti.
Í öðrum byggðalögum á félagssvæði Skalla gildi hins vegar reglan tonn á móti tonni. Óskað var eftir að sveitarstjórn beitti sér fyrir að færa þennan þátt úthlutunarregla byggðakvóta til samræmis við það sem gildir í öðrum bæjarfélögum á svæðinu. Bréfinu var vísað til umræðu um reglur um byggðakvóta sem verða til umfjöllunar þegar og ef byggðakvóta verður úthlutað til sveitarfélagsins.