Skemmdarverk unnin á bifreið lögreglumanns
Á Húnahorninu segir að óprúttinn aðili virðist hafa átt eitthvað sökótt við lögreglumann á Blönduósi því samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var stungið á tvö dekk á einkabifreið lögreglumanns þar í bæ. Bifreiðinni var lagt í innkeyrslu við heimili lögreglumannsins.
Húni.is segir að samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi má sjá skurði á báðum hjólbörðunum og er talið að skemmdarverkið hafi verið framið einhvern tímann á síðustu þremur dögum.