Skemmtikvöld starfsbrautar FNV á morgun
Hið árlega skemmtikvöld starfsbrautar FNV verður haldið á sal skólans miðvikudaginn 21. mars og hefst kl. 20:00. Nemendur á starfsbraut hafa haldið skemmtikvöld til fjáröflunar í ferðasjóð sinn til nokkurra ára og hafa notað ferðasjóðinn í skemmtileg ferðalög til Evrópu og hafa farið í heimsókn til Danmerkur, Ítalíu og Spánar.
Ferðirnar hafa verið á þriggja ára fresti eða um það leiti sem þau útskrifast úr FNV. Síðasta ferð nemenda var árið 2010 og bar keim af efnahagskreppunni en ferðasjóðurinn borgaði þriggja daga ferðalag til Vestmannaeyja. Stefnt er á að komast í ferð á næsta ári og verður staða sjóðsins og efnahagsástand að ráða hvert verður farið.
Dagskráin í ár samanstendur af fróðleik og tónlist fyrir alla. Sigvaldi Gunnarsson og Sveinn Rúnar Gunnarsson félagar úr Tónlistarklúbbi FNV leika nokkur lög og við fáum frábært tónlistarfólk úr 10. bekk í Árskóla þau Daníel Þorsteinsson, Bergrúnu Sólu Áskelsdóttir og Sunnu Óskarsdóttur.
Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar kynna nám sitt í kvikmyndagerð við FNV í máli og myndum, en nám í kvikmyndagerð er nýtt námsframboð í FNV sem unnið er í samvinnu við Skottu kvikmyndafjelag Árna Gunnarssonar.
Kynning á starfi Rauðakrossdeildar Skagafjarðar en þar ætlar Kristín Bjarnadóttir að fræða okkur um starfssemi deildarinnar og hvað sjálfboðaliðar RKÍ í Skagafirði hafast að.
Sjálfsbjörg í Skagafirði – fyrir hvað standa þessi samtök? Kynning á starfseminni, Þuríður Harpa Sigurðardóttir endurvakti félagið og hefur látið til sín taka t.d í aðgengismálum hér í Skagafirði ásamt fleirum.
Dregið verður úr seldum miðum og eru matarlegir vinningar í boði Hlíðarkaups, Sauðárkróksbakarís, Bláfells, N1 Ábær og Ólafshúss.
Komið og njótið kvöldsins með okkur - kaffihúsastemming og huggulegheit - nemendur og kennarar baka vöfflur og bjóða á hóflegu verði.
Aðgangseyrir er kr. 800 fyrir eldri en 16 ára en kr. 500 fyrir nemendur FNV og alla 16 ára og yngri. Allur ágóði rennur óskiptur í ferðasjóð starfsbrautar.
Verið velkomin
Nemendur á Starfsbraut FNV