Skemmtileg alíslensk stemning í Ævintýri norðursins 2012 - breytt dagskrá

Hin árlega stóðsmölun á Laxárdal fer fram á morgun, laugardaginn 15. september, og er öllum velkomið að taka þátt í þessum einstaka reiðtúr, samkvæmt frétt á Húna.is. 

Lagt verður upp frá Skrapatungurétt kl. 11:00 og er áætlað er að koma í Kirkjuskarðsrétt kl. 13:00, þaðan verður svo haldið kl. 15:00. Ferðamannafjallkóngur verður Valgarður Hilmarsson.

Veitingasala verður í Kirkjuskarðs- og Skrapatungurétt og verður aðstaða til að geyma hesta frá föstudegi yfir á laugardag í Skrapatungurétt. Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.

Um kvöldið verða veitingar fyrir svanga smala og aðra hestamenn á veitingastaðnum Pottinum á Blönduósi. Stórdansleikur með Pöpum verður í Félagsheimilinu Blönduósi og opnar húsið kl. 23:00. Barinn verður opinn og aldurstakmark 18 ár.

Sunnudaginn 16. september hefjast stóðréttir í Skrapatungurétt kl. 11:00 en þar verður skemmtileg alíslensk stemning. Veitingasala verður í réttarskála.

Fleiri fréttir