Skipa 32 manna samráðvettvang

Á síðasta stjórnarfundi SSNV lagði framkvæmdastjóri fram tillögu að gerð sóknaráætlunar fyrir landshlutann. Samkvæmt samningi um sóknaráætlun munu sveitarfélögin innan SSNV skipa 32 manna samráðsvettvang vegna sóknaráætlunar.

Sóknaráætlun Norðurlands vestra er þróunaráætlun og felur í sér stöðumat landshlutans, framtíðarsýn, markmið og leiðir til að ná fram þeirri framtíðarsýn. Áætlunin er gerð til 5 ára en hægt er að uppfæra hana innan tímabilsins.

Samkvæmt samningnum skipa landshlutasamtökin SSNV samráðsvettvang þar sem tryggð er sem breiðust aðkoma sveitarstjórna, stofnana, atvinnulífs, menningarlífs, fræðasamfélags og annarra haghafa í landshlutanum. Gæta skal lýðræðis, búsetu, aldurs og kynjasjónarmiða. Samráðsvettvangurinn skal m.a. hafa beina aðkomu að gerð sóknaráætlunarinnar.

Á fundi stjórnar SSNV var samþykkt að fela sveitarstjórnum sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra að tilnefna fulltrúa í 32 manna samráðsvettvang. Skipting fulltrúanna er sem hér segir:

  • Sveitarfélögin í Skagafirði: 14 fulltrúar, 14 til vara
  • Sveitarfélögin í A-Húnavatnssýslu: 11 fulltrúar, 11 til vara
  • Húnaþing vestra: 7 fulltrúar, 7 til vara

"Mikilvægt er að við val á fulltrúum í samráðsvettvanginn gæti sveitarfélögin þeirra sjónarmiða sem fram koma í samningnum og tilgreind eru hér að ofan," segir í fundargerð stjórnar SSNV frá 13. maí sl.

Fyrsti fundur samráðsvettvangsins verður haldinn í Menningarhúsinu Miðgarði 10. júní nk., kl. 17:00, eins og Feykir hefur þegar greint frá. Mikilvægt er að árétta að samráðsvettvangurinn verður opin öllum íbúum svæðisins sem áhuga hafa á að taka þátt í gerð sóknaráætlunarinnar,“ segir ennfremur í fundargerðinni.

Fleiri fréttir