Skipta þarf um glugga í Húnaveri

Á fundi húsnefndar Húnavers sem fram fór á dögunum kom fram að skipta þarf um glugga í húsinu en verðhugmynd er 120.000 á hvern glugga og myndi heildar kostnaður við glugga skipti í húsinu því vera um 6,2 milljónir króna.

Eitthvað er um að húsið sé bókað í sumar en Landsmót Bifhjólafólk mun fara fram í Húnaveri auk þess sem Landrover klúbburinn mun verða með húsið eina helgi.

Fleiri fréttir