Skoða möguleika á byggingu hótels á Skagaströnd

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að skipa starfshóp vegna eflingar ferðaþjónustu á Skagaströnd. Hlutverk hópsins er að skoða hvernig megi gera ferðaþjónustu enn öflugri og mikilvægari atvinnugrein. Skoðaðir verði meðal annars möguleikar byggingar hótels á Skagaströnd.

Þetta kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar Skagastrandar frá 20. júní síðastliðnum. Starfshópinn skipa þeir Adolf H.Berndsen, Halldór G.Ólafsson og Jón Ólafur Sigurjónsson. Starfshópurinn skal skila niðurstöðum sínum fyrir 1. desember næstkomandi. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir