Skóflustunga að stækkun veiðihúss við Laxá á Ásum

Á fimmtudaginn var tók Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra iðnaðar- og ferðamála, fyrstu skóflustungu að stækkun veiðihússins Ásgarði sem staðsett er við Laxá á Ásum, ásamt Páli Á. Jónssyni, formanni veiðifélagsins.
Fjölmargir voru viðstaddir athöfnina, en til stendur að stækka veiðihúsið um u.þ.b. 230 fermetra. Í hinum nýja hluta verður annars vegar gistiaðstaða fyrir gesti og vöðlugeymsla og hins vegar gistiaðstaða fyrir gesti.
Stækkun veiðihússins kemur í beinu framhaldi af því að Rarik leggur niður Laxárvatnsvirkjun sem nýtt hefur vatnið í efri hluta árinnar, en við þessar breytingar mun vatnsmagnið þrefaldast í efri hluta árinnar og það skapar svo tækifæri til að fjölga stöngum í ánni um tvær. Gert er ráð fyrir að breytingunum ljúki vorið 2017 en umsjón með verkinu hefur Loftorka.