Skóla lokað vegna COVID-19 smits í Húnaþingi vestra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
18.03.2020
kl. 08.28
Grunnskóla Húnaþings vestra hefur verið lokað en á Facebook-síðu hans kemur fram að starfsmaður skólans hefði greinst með Kórónaveirusýkingu. Í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis fellur skólahald niður um óákveðinn tíma.
„Foreldrar og starfsmenn þess bekkjar sem viðkomandi starfsmaður starfar í verða látnir vita um þær ráðstafanir sem gera þarf en starfsmaðurinn er sem betur fer ekki alvarlega veikur,“ segir á grunnskoli.hunathing.is.
Af þessum sökum verður því ekkert skólahald í dag, miðvikudaginn 18. mars en farið verður yfir stöðuna með fulltrúum sóttvarnalæknis og foreldrar og starfsmenn upplýstir í kjölfarið um framhaldið.