Skólahald á Norðurlandi vestra í dag

Skólahald fellur sumstaðar niður á Norðurlandi vestra í dag vegna veðurs.
Skólahald fellur sumstaðar niður á Norðurlandi vestra í dag vegna veðurs.

Á vef Svf. Skagafjarðar kemur fram að hefðbundið skólahald verði í Árskóla á Sauðárkróki í dag en Grunnskólinn austan Vatna og Varmahlíðarskóli verða lokaðir. Leikskólinn Ársalir verður opinn en Tröllaborg og Birkilundir lokaðir. Þannig að allt skólahald í Skagafirði fellur niður í dag nema á Sauðárkróki.

Allt skólahald í Grunnskóla Húnaþings vestra, skólaakstur og frístund, verður fellt niður vegna veðurspár. Nemendur og starfsfólk er hvatt til að vera ekki á ferli fyrr en veður lægir. Skólinn opnar aftur miðvikudagsmorguninn 9. desember.
Sömu söguna era að segja með Leikskólann Ásgarð, athugað verður með stöðuna á veðurspá fyrir hádegi í dag og þá metið hvort leikskólinn verði opnaður eftir hádegi eða frá klukkan eitt. Foreldrar leikskólabarna eru vinsamlega beðin um að fylgjast með tölvupósti milli 11.00 og 12.00.

Skólahald fellur niður í Húnavallaskóla, bæði í grunn- og leikskóla, vegna slæmrar veðurspár. 

Í tilkynningu frá Höfðaskóla á Skagaströnd segir forráðamenn meti hvort þeir sendi börn sín í skóla. Komi til lokunar skóla, verður sendur póstur og sms til allra.

Skólahald verður með hefðbundnum hætti í Blönduskóla á Blönduósi.

 

 

Fleiri fréttir