Skólar í A-Húnavatnssýslu settir á morgun

Skólasetning Höfðaskóla á Skagaströnd verður á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst kl 11:00 í Hólaneskirkju. Að henni lokinni mæta nemendur í skólann til umsjónarkennara og taka við stundaskrám. Kennsla hefst föstudaginn 23. ágúst skv. stundaskrá.

Húnavallskóli verður einnig settur á morgun, fimmtudag, kl 14:00. Nemendur 2.-10.bekkjar mæta í skólann með skólabílum á föstudaginn kl 10:00. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá mánudaginn 26. ágúst kl 8:30.

Blönduskóli á Blönduósi verður einnig settur á morgun og hefst skólasetningin kl 11:00 í Blönduóskirkju. Að henni lokinni munu nemendur hitta umsjónarkennara og fá afhentar stundatöflur. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá á föstudag.

Fleiri fréttir