Skólastjóri óskast sameinaða skólastofnun Húnavatnshrepps

Húnavallaskóli og leikskólinn Vallaból á Húnavöllum verða sameinaðir í eina skólastofnun frá og með 1. ágúst n.k. en að því tilefni óskar sveitastjórn Húnavatnshrepps eftir umsækjendum um stöðu skólastjóra við nýjan sameinaðan skóla.

Starfssvið skólastjóra verður að skipuleggja og þróa skólastofnunina, fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. Stjórnun og ábyrgð á rekstri skólans og gerð fjárhagsáætlunar og að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, foreldra og skólasamfélagsins í heild. Í auglýsingu frá sveitarfélaginu segir að leitað sé að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og framsýnum einstaklingi til að samþætta og leiða skólastarfið.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun júlí.

Fleiri fréttir