Skólinn opnar dyr
Námskynning verður á vegum Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra á Kaffi Krók á Sauðárkróki mánudaginn 16. maí kl. 14 en þá verður haldin opin kynning á möguleikum til að hefja nám haustið 2011 í framhaldsskólum og háskólum undir yfirskriftinni: Skólinn opnar dyr!
Uppfylla þarf inntökuskilyrði skólanna en þeim hefur verið gert kleift að taka við mun fleiri nemendum en áður. Á kynningunni verða fulltrúar frá eftirtöldum skólastofnunum:
- Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
- Farskólanum
- Hólaskóla
- Háskólanum á Akureyri
Einnig verður á staðnum kynningarefni frá fleiri skólum.
Allir velkomnir