Skómarkaður Hvatar

Hvöt verður með skómarkað í Hvatarbúðinni á morgun, þriðjudaginn 17. apríl, á milli kl. 16-17 á þriðjudaginn, búðin verður svo opin milli kl. 17-19 sama dag.

Fyrirkomulagið verður á þann veg: „Þið mætið með notaða íþróttaskó - við seljum - þið fáið peninginn,“ segir í fréttatilkynningu frá Hvöt sem birt var á Húna.is. Fjögur verð 500, 1000, 1500 eða 2000 kr. en seljandi ákveður verðið.

Í Hvatarbúðinni eru einnig seldar notaðar Hvatartreyjur, stuttbuxur og fótboltasokkar á góðu verði og svo nýjar vörur, s.s. flíspeysur og legghlífar merktar Hvöt, buff og fleira. Sunddeildin verður með Ullmax vörur sem hægt verður að panta á staðnum.

 

Fleiri fréttir