Skorað á Alþingi að leggja aðildarumsókn til hliðar

Hafin er söfnun undirskrifta á netinu á vefsíðunni www.skynsemi.is þar sem skorað er á Alþingi að leggja til hliðar aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Meginástæðurnar eru óvissa um þróun Evrópusambandsins, myntbandalagsins og afgerandi andstaða landsmanna við aðild.

 

Á vefsíðunni segir að skorað sé á Alþingi að leggja aðildarumsókn að Evrópusambandinu til hliðar vegna þess að:

1 - Óvissa um þróun Evrópusambandsins og framtíð evrunnar.
Ljóst er að Evrópusambandið hefur tekið verulegum breytingum frá því að Alþingi samþykkti aðildarumsókn þann 16. júlí 2009. Sambandið glímir nú við alvarlega skuldakreppu sem ekki sér fyrir endann á og mikil óvissa ríkir um framtíð evrunnar.

2 - Dýrt aðildarferli sem dreifir kröftum frá brýnni verkefnum.
Aðildarferlið er dýrt, mannfrekt og mjög umdeilt. Kröftum stjórnsýslunnar og fjármunum er dreift frá mun brýnni verkefnum.

3 - Afgerandi andstaða við aðild.
Víðtæk samstaða og einlægur vilji til aðildar ættu að vera frumskilyrði fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu, en skoðanakannanir sýna að afgerandi meirihluti landsmanna er andvígur aðild. Meirihluti vill að aðildarumsóknin verði dregin til baka.

 

Áskorunin hljóðar svo: “Við skorum á Alþingi að leggja til hliðar aðildarumsókn að Evrópusambandinu.”

En því skyldi þessi áskorun koma nú þar sem búið er að leggja mikið fé og tíma í aðildarviðræðurnar?

„Evrópusambandið hefur tekið verulegum breytingum frá því að Alþingi samþykkti aðildarumsóknina þann 16. júlí árið 2009. Sambandið glímir nú við alvarlega skuldakreppu sem ekki er séð fyrir endann á og mikil óvissa ríkir um framtíð evrunnar.

Víðtæk samstaða og einlægur vilji til aðildar ættu að vera frumskilyrði fyrir aðild að Evrópusambandinu, en skoðanakannanir sýna að afgerandi meirihluti landsmanna er andvígur aðild.

Á niðurskurðartímum er erfitt að réttlæta útgjöld til verkefnis sem á jafn litla möguleika og aðildarferlið. Ferlið sjálft er mjög mannfrekt, kallar á ýmsar breytingar og dreifir þannig kröftum stjórnsýslunnar frá mun brýnni verkefnum.

Af þessum ástæðum skorum við á Alþingi leggja aðildarumsóknina til hliðar.“

 

Um Skynsemi segir á vefsíðunni að það sé yfirskrift átaks sem hefur það markmið að safna undirskriftum undir áskorun til Alþingis um að ESB umsóknin verði lögð til hliðar.

„Aðstandendur átaksins hafa ólíkar stjórnmálaskoðanir en við erum sammála um að það sé farsælast fyrir Ísland að umsóknin til ESB verði lögð til hliðar.

  •  1.Evrópusambandið hefur breyst frá því Alþingi samþykkti umsóknina og framtíð þess og einkum myntbandalagsins er óljós.
  •  2.Aðildarferlið er kostnaðarsamt og dreifir athygli stjórnsýslunnar frá mun brýnni viðfangsefnum.
  •  3.Skoðanakannanir benda til yfirgnæfandi andstöðu við aðild.“

 

Aðstandendur átaksins eru:

  •  ■Axel Þór Kolbeinsson, tölvutæknir
  •  ■Esther Anna Jóhannsdóttir, viðskiptafræðingur
  •  ■Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræðingur
  •  ■Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögfræðingur
  •  ■Jón Árni Bragason, verkfræðingur
  •  ■Jón Baldur Lorange, stjórnmálafræðingur og kerfisfræðingur
  •  ■Sigríður Á. Andersen, héraðsdómslögmaður
  •  ■Sigurbjörn Svavarsson, rekstrarfræðingur

Fleiri fréttir