Skorað á Auðhumlu að standa við gefin loforð

Kýr í haga. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/ÓAB
Kýr í haga. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/ÓAB

Deildarfundur Austur- og Vestur-Húnaþingsdeilda Auðhumlu skorar á stjórn Auðhumlu að standa við gefin loforð um að greiða fullt afurðastöðvarverð fyrir alla mjólk út árið 2016 eins og búið er að gefa út. Austur- og Vestur-Húnaþingsdeildar Auðhumlu samþykkti ályktun þess efnis á deildarfundi sem haldinn var á Gauksmýri þann 17. mars síðastliðinn. Húni.is greinir frá.  

„Í tilkynningu segir að framsögur hafi verið nokkuð góðar og ýmislegt rætt er varðar mjólkurframleiðslu framtíðarinnar og stöðuna sem greinin er í í dag,“ segir loks í frétt Húna.isÁ fundinn mættu Egill Sigurðsson, Garðar Eiríksson, Björn Baldursson og Pálmi Vilhjálmsson. 

 

Fleiri fréttir