Skortur á nautgripakjöti hækkar verð til bænda

Afurðaverð á nautakjöti hefur hækkað til bænda að undanförnu en mikill skortur er nú á nautgripakjöti á landinu. SAH Afurðir á Blönduósi tilkynntu nýlega verðhækkun til bænda og er að sjá að flestar kjötafurðastöðvar á landinu séu með samskonar verð á bestu flokkum nautgripakjöts.

Nú getur bóndinn átt von á því að fá kr. 137750 fyrir 250 kg naut sem fer í fyrsta flokk UN1A og kr. 150000 fyrir jafn þungt naut sem fer í UN1 Úrval en fyrir UN1A fæst  551 kr/kg og fyrir Úrvals naut 600 kr/kg.

Fleiri fréttir