Skotfélagið Markviss 25 ára
Skotfélagið Markviss fagnar í dag merkum áfanga í sögu félagsins, en það var stofnað þennan dag fyrir 25 árum síðan, eða 2. september 1988. Stofnfundurinn var haldinn á Hótel Blönduós og voru viðstaddir formaður Skotíþróttasambands Íslands Þorsteinn Ásgeirsson og Ferdinand Hansen formaður Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar auk heimamanna.
Stofnfélagar voru eftirfarandi:
Arnbjörn Arason, Ágúst Sigurðsson, Björn Logi Björnsson, Eyþór Ó. Karlsson, Guðmundur Sigfússon, Gunnar Þór, Hjörleifur Júlíusson, Ívar Snorri Halldórsson, Jakob Jónsson, Júlíus Fossdal, Sturla Þórðarson, Sveinn Sveinsson, Vignir Björnsson og Þorvarður Halldórsson.
Samþykkt var tillaga Ágústs Sigurðssonar um stofnun félagsins undir nafninu „MARKVISS“.
Í fyrstu stjórn voru kosnir, formaður: Arnbjörn Arason, gjaldkeri: Vignir Björnsson og ritari Björn Logi Björnsson.
Fljótlega var farið í að finna hentugt svæði undir starfsemina og 3. nóvember 1988 barst svar frá bæjaryfirvöldum þess efnis að félagið hefði fengið úthlutað svæði í Blöndukötlum (kúagirðing).
Stjórn Markviss fór fram á, á fundi með bæjartæknifræðingi, að fá úthlutað hentugra svæði og varð endirinn sá, eftir ýmsar tillögur að félagið fékk úthlutað svæði austan flugvallar, í nóvember 1989, og hefur verið með starfsemi sína þar allar götur síðan.
Eins og verða vill þá dróst starfsemi félagsins saman með árunum, bæði fluttu virkir félagsmenn úr sýslunni og áhugi þeirra sem eftir voru dvínaði. Segja má að frá 1997 og fram yfir árið 2000 hafi lítil sem engin starfsemi verið hjá félaginu önnur en að sjá um verklega kennslu á skotvopnanámskeiðum og sinna einstaka hópum sem vildu komast á skotvöllinn. Formaður félagsins á þessum tíma var Sighvatur S. Steindórsson, og á hann öðrum fremur heiður skilinn af því að halda lífi í félaginu á þessum árum.
Í byrjun nýrrar aldar boðaði formaður til fundar til að blása lífi í félagið og mættu menn galvaskir á Árbakkann að kvöldi 1. júní árið 2001.
Í kjölfar þessa fundar má segja að hjólin hafi farið að snúast aftur, nýir menn fundu sig í skotíþróttinni og hefur starfsemi félagsins aukist ár frá ári, og er Markviss í dag eitt virkasta skotfélag landsins. Haldin hafa verið landsmót á svæði félagsins á hverju sumri undanfarin átta ár, auk Norðurlandsmóta sem skotfélög norðan heiða halda til skiptis. Mót sem haldin hafa verið á svæði félagsins hafa verið fjölsótt og íslandsmet slegin og jöfnuð, enda skotvöllur Markviss einn sá besti á landinu þegar kemur að bakgrunni og vélakosti.
Keppnisfólk félagsins hefur unnið fjölda titla á undanförnum árum og má þar nefna Íslandsmeistaratitil karla árið 2010, Íslandsmeistaratitil kvenna 2013, Norðurlandsmeistaratitla 2008-2010-2011 auk þess sem keppendur Markviss hafa staðið á verðlaunapöllum á fjölda lands og alþjóðlegra móta sem haldin hafa verið síðustu ár.
Þá má einnig nefna að Skotfélagið var eina aðeildarfélag USAH sem sendi keppendur á Landsmót UMFÍ á Selfossi í sumar.
Skotíþróttir eiga auknum vinsældum að fagna hérlendis og hefur fjöldi iðkenda aukist ár frá ári, í dag eru um 70 félagar skráðir í Markviss og fer fjölgandi, því er það ætlun stjórnar Skotf. Markviss að halda áfram uppbyggingu skotsvæðis félagsins. Sótt hefur verið um leyfi til að setja upp aðstöðu fyrir kúlugreinar á skotsvæðinu en erindinu hefur verið synjað í tvígang, því eru þeir fjölmörgu sem stunda skotfimi og veiðar með rifflum aðstöðulausir og leita annarra leiða til æfinga. Hægt er að færa rök fyrir að með tilkomu aðstöðu fyrir riffilskyttur myndi draga úr „æfingum“ á víðavangi (Kúagirðingu,Kleifarhorni og utanvið hafnargarð) með auknu öryggi fyrir bæði almenning og iðkendur.
Verkefni næstu ára eru t.d. að bæta úr skorti á salernisaðstöðu á skotsvæðinu, lagfæra veg að svæðinu, huga þarf að kaupum á stærra félagshúsi og svo mætti lengi telja.
Sem stendur eru blikur á lofti með áframhaldandi uppbyggingu þar sem samkvæmt gildandi aðalskipulagi Blönduósbæjar er ekki gert ráð fyrir skotsvæðinu á núverandi stað, þess í stað er gert ráð fyrir skotíþróttasvæði á gamla urðunarstaðnum í Draugagili, þar eru hinsvegar settar miklar hömlur á nýtingu svæðisins vegna reglna Heilbrigðiseftirlits varðandi urðunarstaði, auk þess sem umrætt svæði er mun nær byggð en það sem skotfélagið hefur nú til umráða.
Stjórn Markviss mun í samráði við bæjaryfirvöld leita viðunandi lausna á framtíðarstaðsetningu skotsvæðisins og vonandi fæst niðurstaða í það mál sem fyrst.
Að lokum vill stjórn skotfélagsins þakka eftirtöldum aðilum fyrir stuðning við okkur á liðnum árum.
Blönduósbæ
Húnavatnshrepp
Léttitækni ehf
Sorphreinsun V H
Vilkó/Prima
Fh.
Stjórnar Skotf.Markviss
Guðmann Jónasson