Skrifað undir samninga vegna 3. Landsmóts UMFÍ 50+ í Vík í Mýrdal

Búið er að undirrita samninga vegna 3. Landsmóts UMFÍ 50+ á milli landsmótsnefndar og Mýrdalshrepps annars vegar og Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu hins vegar. Mótið verður haldið 7.-9. júní í sumar í Vík Mýrdal. Aðstaðan í Vík er mjög góð til að halda Landsmót UMFÍ 50+ samkvæmt tilkynningu frá UMFÍ.

Íþróttahús er í Vík sem er sambyggt við sundlaugina á staðnum. Góð frjálsíþróttaaðstaða er á staðnum með gerviefni sem byggð var fyrir unglingalandsmótið sem þar var haldið 2005. Sparkvöllur er á staðnum sem og tveir reiðvellir sem og glæsilegur 9 holu golfvöllur.

Keppnisgreinar á mótinu verða: Almenningshlaup, frjálsar íþróttir, boccia, golf, bridds, hestaíþróttir, hjólreiðar, leikfimi dans, línudans, pútt, ringó, skák, sund, starfsíþróttir, hringdansar, sýningar/leikfimi og þríþraut.

Fleiri fréttir