Skrifstofuskóli eftir áramót
Kennsla í skrifstofuskólanum hefst á vegum Farskólans um miðjan janúar. Verður boðið upp á bæði dagnám og kvöldnám. Markmið námsins er að auka hæfni námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og stuðla á jákvæðu viðhorfi þeirra til áframhaldandi náms.
Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og starfsfærni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtaum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn skrifstofustörf.
Námsgreinar í skrifstofuskólanum eru sjálfstyrking, samskipti, tímastjórnun og markmiðasetning, námstækni, verslunarreikningur, bókhald, tölvubókhald-Navision, þjónusta og símsvörun, tölvu- og upplýsingaleikni, færnimappa og ferilskrá.
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er námið niðurgreitt af Fræðslusjóði. Námið er 240 kennslustundir. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu orðnir 20 ára og hafi stutta formlega skólagöngu að baki. Kennt verður þrisvar til fjórum sinnum í viku. Boðið er upp á fjarnám.
Námskeiðsverð er 44.000 krónur en fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið. Upplýsingar og skráning eru í síma 455 6010 og á heimasíðu Farskólans, farskolinn.is. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ingólfsson hjá Farskólanum. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2014.