Skýlaust brot á lögum um velferð dýra
Matvælastofnun hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna frétta í fjölmiðlum um dráp á kú á Norðvesturlandi um mitt síðastliðið ár. Í Fréttatímanum var greint frá því að bóndi á Norðurlandi hafi verið ákærður fyrir dýraníð í fyrrasumar eftir að hann „brá reipi um hálsinn á ungri kvígu og festi það aftan í jeppabifreið og dró hana liggjandi á eftir bílnum, þannig að hún drapst,“ eins og segir í frétt Fréttatímans.
Samkvæmt fréttinni var það barnsmóðir bóndans sem kærði málið til héraðsdýralæknisins, sem hafi farið og rætt við bóndann. Þá varð dóttir hennar og bóndans vitni að atvikinu og tók það ákaflega nærri sér.
Í fréttinni segir að bóndinn hafi játaði fyrir héraðsdýralækninum að hafa gengið of langt, en málið var ekki rannsakað frekar og leyst með áminningu. Rætt er við Hallgerði Hauksdóttur, formann Dýralæknasambandsins, sem sagði þær málalyktir óásættanlegar, að teknu tilliti til alvarleika brotsins. „Þetta er þöggun og gríðarlega alvarlegt brot,“ sagði Hallgerður. „Þetta hefði ekki verið liðið ef um gæludýr hefði verið að ræða. Sönnunargögnin voru til staðar, það hefði verið hægt að grafa hræið upp og rannsaka málið til fulls.“
Í fréttinni er því lýst hvernig kvígan hafi farið út í fyrrasumar í fyrsta skipti. Illa gekk að reka hana inn og fór svo að bóndinn keyrði utan í kvíguna á jeppa sínum þannig að á sá. Því næst setti hann snöru um háls kvígunnar og dró hana á eftir bifreiðinni auk þess að hafa lamið hana með girðingarstaurum. Kvígan gekk með bílnum fyrst um sinn en lagðist svo og var dregin þannig að fjósinu þar sem kom í ljós að hún hafði drepist.
Lýsing bóndans ekki í samræmi við það sem komið hefur fram í fjölmiðlum
Vegna frétta í fjölmiðlum um dráp á kú á Norðvesturlandi um mitt síðastliðið ár vill Matvælastofnun upplýsa eftirfarandi.
„Stofnunin fékk ábendingu í lok júní 2015 um að kú hefði drepist vegna illrar meðferðar af hálfu bónda á Norðvesturlandi. Var brugðist strax við þessari ábendingu og fóru eftirlitsmenn til skoðunar hjá viðkomandi aðila, sem viðurkenndi að kýrin hefði drepist, en lýsing hans á málsatvikum var í veigamiklum atriðum ekki í samræmi við það sem nú hefur komið fram í fjölmiðlum. Að mati starfsmanna Matvælastofnunar var engu að síður um að ræða skýlaust brot á lögum um velferð dýra og var bóndinn áminntur á staðnum, auk þess sem hann var settur undir aukið eftirlit af hálfu héraðsdýralæknis. Viðkomandi aðili hafði ekki áður komið við sögu Matvælastofnunar vegna illrar meðferðar á dýrum.
Þegar þessi atburður varð hafði Matvælastofnun ekki hafið innheimtu stjórnvaldssekta á grundvelli heimilda í lögum um dýravelferð. Nú er hins vegar búið að setja upp ákveðið fyrirkomulag við ákvörðun stjórnvaldssekta, sem hefur verið kynnt fyrir dýraverndarsamtökum og hagsmunaaðilum og þar með samtökum þeirra sem eru undir eftirliti stofnunarinnar. Markmiðið er að geta brugðist strax við brotum á lögum um dýravelferð og ákvarðast sektarupphæð meðal annars af alvarleika, varanleika, fjölda dýra sem um ræðir, brotavilja, hvort um ítrekað brot er að ræða og mögulegum hagnaði af broti. Þar sem gæta þarf jafnræðis og annarra veigamikilla atriða við beitingu stjórnvaldssekta krafðist málið vandaðs undirbúnings og má í því sambandi nefna að með ákvörðun sektar lýkur stofnunin tilteknu máli og refsar þannig hlutaðeigandi aðila. Matvælastofnun getur nú beitt þessu úrræði í málum eins og því sem hér er til umræðu og mun upphæð sektar ráðast af eðli máls,“ segir í fréttatilkynningu.