Slæm mistök markvarðar Kormáks/Hvatar
Markverði Kormáks/Hvatar urðu á slæm mistök í viðureign gegn Stál-Úlfi í 4. deild karla á dögunum.
Vísir.is greindi frá því í gær að Rúben filipe Vasques Narciso átti skot utan af velli sem fór í varnarmann og stefndi fram hjá. Benjamín Freyr Oddsson, markvörður gestanna, reyndi að koma í veg fyrir að boltinn færi aftur fyrir endamörk og úr yrði hornspyrna.
Því miður fyrir Benjamín Frey rann hann til á gervigrasinu, missti boltann frá sér og Karol Stempinski átti ekki í miklum erfiðleikum með að setja boltann í tómt netið.
Stál-Úlfur vann 4-1 sigur í leiknum. Atvikið má sjá hér.