Slæmt veður næstu daga

Búast má við að Vetur konungur gusi leiðindaveðri yfir landið næstu daga en Veðurstofan spáir því að eftir miðjan dag á morgun verði komið norðan vonskuveður um landið norðanvert með vindhraða á bilinu 13-20 m/s. Með þessu verður snjókoma og él og getur færð og skyggni spillst á skömmum tíma.

Almannadeild Ríkislögreglustjóra hefur gefið út tilkynningu og biður menn sem hafa húsdýr úti við að huga að því að koma skepnum í skjól því búast má við mjög hvössum vindhviðum undir Vatnajökli frá því síðdegis á morgun og fram eftir vikunni.

Ekki er búist við að veður fari að batna fyrr en líður á næstu helgi og eins er að sjá að veður geti orðið enn verra á fimmtudag og föstudag.

Lengst af verður þurrt um landið sunnavert og ætti veðrið ekki að valda vandræðum þar. Gert er ráð fyrir að hiti verði um og undir frostmarki sunnan til á landinu næstu daga, en annars staðar verður frost 0 til 7 stig

Fleiri fréttir