Sláturdagurinn mikli

Sláturdagurinn mikli var haldinn í Húnavallaskóla sl. fimmtudag. Þetta var þriðja skólaárið sem Sláturdagurinn er haldinn og því óhætt að segja að þessi skemmtilega hefð sé nú búin að festa sig í sessi í skólanum.     

Allir nemendur skólans hjálpa til við sláturgerðina og var þeim skipt upp í hópa og sinntu hinum ýmsu verkum sem tilheyra sláturgerð. Þá þurfti að hreinsa vambir, sauma keppi og brytja mör. Svo þurfti að hræra bæði lifrarpylsu og blóðmör, setja í keppina og sauma fyrir. Loks var að sjálfsögðu smakkað á góðgætunum.

Nemendur voru mjög áhugasamir og duglegir eins og má sjá á myndunum á heimasíðu skólans.

Fleiri fréttir