Sláturhús SKVH á Hvammstanga fær leyfi til að slátra kanínum
Matvælastofnun Íslands, MAST, hefur nýlega veitt sláturhúsinu SKVH á Hvammstangi leyfi til kanínuslátrunar. „Þetta er besta jólagjöfin sem ég get hugsað mér“, segir Birgit Kositzke, kanínubóndi á Hvammstanga. Slátursleyfið er undirstaða innkomu kanínukjöts á markaðinn. Í haust hefur hún flutt starfsemina sína frá Tjarnarkoti að Syðra Kárastöðum á Vatnsnesi og una kanínurnar sínum hag vel. En vegna langvarandi óvissu í sláturmálum var dregið verulega úr stofnstærð og hógvær stefna í fjölgun kanína hefur verið ríkjandi.
Á meðan beðið var eftir leyfinu hefur Birgit ekki setið auðum höndum. Kanínuskinn hafa verið unnin á mismunandi hátt – sem feldur og einnig sem leður, og lofa þessar tilraunir afar góðu. Þess er væntanlega ekki langt að bíða að handverksfólkið á svæðinu fái nýtt og skemmtilegt hráefni, og að sælkerar fái aðgang að nýrri tegund kjöts.
Til gamans er hér uppskrift um matreiðslu kanínukjöts. Hún er með evrópskum keim og hefur sannað sig í veislu sem þó hefur ekki verið haldin á vegum Kanínu ehf. ...
Kanína í sinnepssósu. (fyrir fjóra).
Meðlæti: sykurlaus kartöflumús eða hrísgrjón, salat.
1. skref:
- 1 stór kanína í bitum. Hreinsa alla sýnilega fitu frá.
- salt, pipar úr kvörninni
- 2 msk. Dijon sinnep
- ólívuolía
Nudda kanínukjötið upp úr sinnepi. Ekki nota of mikið af sinnepi, annars brennur það við. Hita ofninn á 180° C. Steikja kjötið á stórri pönnu í olíunni til að loka kjötið. Setja kjötið svo í ofnpott.
2. næsta skref:
- 4 laukar, gróflega hakkaðir
- 6 sneiðar beikon í bitum
- 4 msk. hveiti
- 3 bollar kjúklingasjóð
- 1,5 bolli hvítvín
Handafylli af fersku garðablóðbergi (hægt er að skipta blóðberginu út fyrir Fáfnisgras (Estragon), en með þessu móti verður rétturinn verulega „franskur“ ...)
- 1 bolli rjóma
- 2 msk. Dijon sinnep
- blóðberg til skreytingar
Steikja laukinn og beikonið á sömu pönnunni og kanínukjötið hefur verið steikt í, ekki skola á milli. Ekki þarf að steikja lengi. Strá hveitið yfir, hræra vel, setja hvítvínið út í, hræra meira, og bæta svo kjúklingasoðinu og blóðberginu við. Hella sósunni yfir kjötið í pottinum, setja lok yfir og láta bakast í ofninum í um 80 – 90 mín.
Hræra sinnep og rjóma saman og hella í pottinn. Setja pottinn á eldavélahellu, láta suðan koma upp aftur og smakka til með salt, sinnepi og pipar.
Verði ykkur að góðu!